|
|
06.06.2006 18:06:58 / gazzi
www.gardarorn.bloggar.is
»
06.06.2006 17:00:24 / gazzi
Þann 06.06.06 kl 06:06 p.m verður nýja bloggið opnað. Eftir stutta
stund kynni ég fyrir ykkur þá slóð, sem þarf að fara til að finna
bloggið mitt nýja.
»
05.06.2006 21:47:47 / gazzi
Ágætu unnendur bloggsins míns. Núna er ég að fara að hætta hérna og
búa til nýtt blogg á öðrum stað. Ég læt ykkur vita þegar
verktakarnir mínir, sem ég setti í að búa til nýtt blogg fyrir mig,
eru klárir og búnir með verkið. Stefnt er að því að vera búið með
verkið í vikunni
»
30.05.2006 07:09:14 / gazzi
Þeim rignir inn afmæliskveðjunum þessa daganna, en núna er komið
að aðal kveðjunni, með fullri virðingu fyrir öðru fólki.
Einhver fegursta, skemmtilegasta og klárlega fyndnasta
manneskja, sem dregið hefur andann á þessari jörðu á afmæli í dag.
Hún er ekki há í loftinu enda varð hún bara 7.ára í dag. Ég er að
tala um hana dóttur mína, hana Birtu Dögg.
Mér finnst þú frábær. Mér finnst þú meiriháttar. Mér finnst þú
yndisleg. Mér finnst þú rosaleg. Mér finnst þú geggjuð. Mér finnst
þú flott. Mér finnst... mér finnst og ég gæti haldið endalaust
áfram Birta mín. Ég gleymi því aldrei þegar þú komst í heiminn,
hversu hamingjusamur ég varð, þegar ég sá litla kútinn minn
skjótast út. Ég var svo hamingjusamur og í svo mikilli sæluvímu, að
ég tók ekkert eftir því, þegar ljósmóðirinn tilkynnti mér og mömmu
þinni, hvort kynið þú værir. Mér var svo nákvæmlega sama hvort
kynið þú værir. Ég reyndar rankaði við mér, nokkrum andartökum
síðar og spurðist fyrir um kyn. Skemmtilegra að vita það, þó að það
hefði ekki verið aðal málið 
Ég hugsa oft út í, hvernig ég fór að áður en þú fæddist. Sá tími
virðist eitthvað vera svo óraunverulegur og fjarlægur. Mér finnst
ég hafa átt þig alla tíð og það gleður mitt hjarta að vita það, að
ég mun eiga þig í mörg, mörg ár í viðbót. Ég veit ekki hvort þú
kemur til með að lesa þetta Birta mín, en ég elska þig alveg hreint
svakalega mikið. Þú veist það líka, enda hef ég ekki við að segja
það við þig. Kannski ertu orðin þreytt á því, en mér er alveg sama.
Ég segi þetta við þig í hvert einasta skipti sem ég sé þig og
hitti, og ég er ekki að fara að hætta að segja þetta við þig. Að
eiga þig að sem dóttur, er það besta sem ég hef upplifað á ævinni.
Mér hefur tekist margt á mínum rúmlega 30.árum en þú ert klárlega
það besta sem hefur komið fyrir mig. Ég elska þig Birta mín og ég
kem til þín í kvöld með afmælisgjöfinna. Pabbi
»
20.05.2006 10:20:15 / gazzi
Til hamingju með daginn elsku litla besta hunangstunglið mitt. Þú
ert algjört krútt og átt allt það besta í veröldinni skilið. Þú
hefur undanfarið tekið þung skref, en þú veist það samt að ég mun
gera allt sem ég get, til að létta þér skrefin. Þú ert fallegasta
stelpa í heimi og mundu það, að ég verð þér alltaf við hlið, sama
hvað dynur á. Þuríður Arna... til lukku með 4.ára afmælið.
»
19.05.2006 16:14:22 / gazzi
Núna er ég ansi hræddur um það, að það sé bremsufar í eitís
G-streng Sylvíar Nætur. Sú er aldeilis búin að drulla vel upp á
eigið bak. Leiksýning hennar, sem einkenndist af hroka og egói,
endaði upp á stóra sviðinu í Grikklandi í gær, með einhverju mesta
bauli í sögu Júróvisionkeppninar. Ekki bara fyrir lag, heldur
einnig eftir flutning lags hennar og Þorvaldar Bjarna. Fyrir utan
það, þá virkaði hún óörugg og stressuð.
Þetta vilduð þið, ekki satt? Mestu fígúru Íslandssögunnar til að
auglýsa land og þjóð. Það er varla að maður þori að segja að maður
sé Íslendingur lengur. Ég held að fígúran Sylvía Nótt sé búin að
vera. Fyrir utan það sem hún gerði litlu börnunum, sem biðu eftir
henni í röðum fyrir utan Esso og vildu fá áritaðann geisladisk. Hún
er átrúnaðargoð litlu barnanna í dag og hún mætti ekki til að
gleðja litlu hjörtun, sem dá hana svo heitt einhverra hluta vegna.
Hvað segir allt þetta um hana?
Ég varð reiður í gær, þegar baulið byrjaði og varð ennþá reiðari
eftir að lagi lauk, þegar baulið hélt áfram. Ég skammaðist mín
fyrir að vera Íslendingur í gær. Svo hugsaði ég út í börnin sem
líklega horfðu öll á útsendinguna í gær og urðu vitni af þessu öllu
saman. Litla dóttir mín gat ekki beðið eftir að fá að sjá
átrúnaðargoðið sitt í gær í sjónvarpinu. Sem betur fer varð ég ekki
vitni af því, þegar dóttir mín horfði á þetta allt saman í gær.
Henni hlýtur að hafa liðið illa.
Er ekki kominn tími á að senda út lag í stað þess að senda
alltaf út keppanda? Þetta gerum við ár eftir ár. Alltaf sá eða sú
heitasta send út til að kynna land og þjóð. Erum við svona helv..
vitlaus? Hver veit í hinum stóra heimi hver Sylvía Nótt, Birgitta
Haukdal eða Jónsi í Svörtum fötum eru? Ekki nokkur helv...
kjaftur.
En þetta vilduð þið og núna líður ykkur eins og kjánum helv..
ykkar. Ég sagði ykkur þetta.
Í lokin langar mér líka að benda ykkur á pistil hjá félaga mínum
sem Þröstur. Hann er undir heitinu "bluebird" í tenglasafninu mínu
og þar veltir hann fyrir sér aðeins júróvision. Ég er mjög sjaldan
sammála Þresti, enda er hann illa gefinn einstaklingur, en þarna
hefur hann loksins rétt fyrir sér.
»
29.04.2006 13:03:43 / gazzi
Mjölnir 5. mars
1947
Bíóið
hérna er bænum til skammar.
Einn af þeim fáu stöðum, et hér standa almenningi
opin til skemmtunar og afþreyingar á kvöldin er Nýja Bíó, sem rekið
er af Hinrik Thorarensen.
Sá maður er löngu orðinn frægur fyrir lítinn
glæsibrag á þeim stofnunum, sem hann rekur og er bíóið sannarlega
engin undantekning.
Er áreiðanlega leitun á öðru eins kvikmyndahúsi,
a.m.k. í þeim löndum, sem eiga að heita menningarlönd.
Umgengni þarna er svo fyrir neðan allar hellur, að
engu líkara er, en að eigandinn geri sér það til yndis að hafa
þetta svona.
Um myndavalið skal ekki fjölyrt, - það er býst ég
við svipað og annarsstaðar, en mun þó yfirleitt lélegra. En
húsakynnin og umgengnin er sennilega Evrópumet a.m.k. Þegar komið
er inn í forstofuna blasir strax við eyðileggingin.
Veggir allir eru rispaðir og krotaðir langt inn í
stein og svo langt upp sem hægt er að seilast. Forstofan er full af
unglingum, sem virðast hugsa um það eitt að ólmast sem mest og gera
sem mestan hávaða.
Þegar inn í salinn kemur leggur fyrir vitin óþef,
sem venjulega myndast í illa upphituðum húsakynnum.
Sæti öll eru úr lagi gengin, þeim er illa raðað og
seturnar úr stólunum liggja oft niðri á gólfi og eru rifnar og
hálfbrotnar. Um það eitt er hugsað að hirða peningana af
sýningargestum.
Síðan er þeim hleypt inn eins og fé í rétt og
ekkert hirt um hvort þeir geti notið þess, sem þeir eiga að fá
fyrir peningana eða ekki. Enginn skiptir sér af því, þó að ólætin
séu svo mikil, að maður geti naumast gert sér grein fyrir hvort
maður er að horfa á þögla mynd eða -talmynd.
Er einna líkast því, að sýningin færi fram á
skólagangi í frímínútum í illa öguðum skóla. Upphitun er ekki meiri
en það, að þótt maður sitji í þykkum frakka með trefil og
vettlinga, er trauðla, að maður haldi á sér hita.
Það er dapurleg hugmynd, sem aðkomumaður fær um
menningarlíf í þessum bæ, við að koma í Nýja Bíó.
En sú mun bót í máli, að eigandinn er orðinn
landfrægur fyrir ómyndarskap og lítilsvirðingu á því er velsæmi
heitir.
Heyrt hef ég. að varla líði svo vika, að þessi maður eigi ekki í
einhverjum erjur við heilbrigðisnefnd, lögreglu, barnaverndarnefnd
og aðra þá, sem líta eiga eftir opinberum rekstri.
En mér er nú spurn. Eru engar kröfur, sem gera verður til þeirra,
er reka t.d. kvikmyndahús? Verður ekki að fá leyfi
bæjaryfirvaldanna til slíks reksturs og geta ekki þau yfirvöld
svift menn slíku leyfi, ef þeir reka það svo, að almennum
hneykslunum valdi?
Hvað á umburðarlyndi bæjarbúa að ná langt gagnvart þeim, sem storka
almenningi. lítilsvirða hann og fótumtroða almennt velsæmi?
Það verður að gera þá kröfu til þessara yfirvalda, að eiganda Nýja
Bíós verði tafarlaust settir tveir kostir. Annaðhvort breyti hann
rekstri kvikmyndahússins í það horf, að menn þurfi ekki að
fyrirverða sig að stíga þar inn fyrir dyr eða hann verði sviptur
leyfi til að reka húsið.
Það er nógu ljótur blettur, sem þessi maður er búinn að setja á
þennan bæ, þótt nú væri sagt hingað en ekki lengra.
En verði ekkert gert gagnvart þessum manni, þá ættu bæjarbúar að
athuga hvort þeir ættu ekki að taka Ólafsfirðinga til fyrirmyndar
og hætta að sækja bíó Thorarensen.
Það er mál, sem hann myndi áreiðanlega skilja, ef lækkaði í
pyngjunni.
Bíógestur.
»
26.04.2006 19:31:02 / gazzi
Jæja, verður
maður ekki rökstyðja svar sitt við því, að ekki eigi að flytja
vín og bjór úr ÁTVR yfir í matvöruverslanir.
Byrjum á
opnunartímanum, sem kæmi ekki til með að skipta neinu máli.
Opnunartími ÁTVR, breytist 1.maí næstkomandi. Verða þá allar
áfengisverslanir á höfuðborgarsvæðinu opnar til kl 18:00 á
laugardögum og tvær til þrjár verslanir, verða opnar til kl 20:00 á
virkum dögum. Ef þetta færi í matvöruverslanir, yrði opnunartíminn
líklega frá 21:00 til 23:00. Ef fólk þarf að kaupa sér vín kl 23:00
á þriðjudagskvöldi, þá er orðið yfir það fólk alkar. En þannig er
það nú samt með allan opnunartíma á öllu, að Íslendingurinn kemur
alltaf á síðustu stundu til að versla. Það hefur marg sýnt sig. Ef
opnunartíminn er til 16:00, þá koma allir rétt fyrir þann tíma. Ef
opnunartíminn yrði lengdur til 18:00, þá mundi fólk sleppa því að
koma kl 16:00 og koma rétt fyrir 18:00. En líklega er opnunartíminn
ekki það sem skiptir mestu máli… eða er það? Þá er það eina ástæðan
fyrir því að ég væri fylgjandi því að fá vín í matvörubúðir.
Förum því næst í,
hver afgreiðir. Hjá ÁTVR mátt þú ekki afgreiða vín, nema þú sért
orðin/n tvítug/ur. Hver er líklegur meðalaldur fólks sem afgreiðir
hjá Bónus, Hagkaup og 10/11? Hann er líklega í kringum 17.ár. Ætlar
sá eða sú sem afgreiðir á kassa hjá Bónus, að neyta 17.ára félaga
sínum um kippu af bjór eða rauðvínsflösku þegar á kassa kemur? Mér
finnst það ólíklegt. Með þessu erum við þá að stuðla að
áfengisdrykkju fólks undir tvítugu. Ætla Bónus eða Hagkaup að reka
sterka forvarnarstefnu eins og ÁTVR? Mér finnst það ólíklegt. Ég
vil ekki að barnið mitt sé að kaupa sér bjór í Hagkaup aðeins 15. –
16.ára. Vilt þú að barnið þitt geri það?
Förum í
þjónustuna. Allir þeir sem starfa hjá ÁTVR, hafa allir lokið
námskeiðum í vínfræðum og eru vínbúðir ÁTVR með vínfræðinga, sem
aðstoða þig við kaup á rétta víninu. Margir hverjir hafa lokið við
mörg námskeið. Gerð var könnun á þjónustu hjá hinum ýmsu
fyrirtækjum og var ÁTVR þar í efsta sæti. Vilt þú ekki góða
þjónustu kæri vinur? Heldur þú að þú fáir hana hjá 17.ára gutta í
10/11? Ég stórefast það.
Förum í vínúrval.
Ekki láta ykkur dreyma um það, að þegar þið gangið inn í Hagkaup
eða Bónus, að þær búðir komi til með að vera með einhverjar
1500.tegundir af bjór og víni, eins og Vínbúð Heiðrúnar og Vínbúðin
í Kringunni eru með. Úrval á víntegundum á eftir að hrynja og ég
get alveg lofað ykkur því að ein sérbúð á Spáni, hefur ekki svona
margar tegundur. Þið getið reynt að halda því fram, en gleymið því.
Án gríns, þá mundi ég telja að tegundafjöldi á bjór og víni, yrði í
algjöru lágmarki í matvörubúðum okkar Íslendinga. Einn Bónusbjór og
eitt Bónusrauðvín. Ég tek svona til orða, ef ég er að stuða
einhverja brothætta sál, en úrvalið verður hlægilega lítið og þetta
eru allir sammála um sem eitthvað vit hafa á bransanum. Allir þeir
sem flytja inn vín eru á þessu og virðist sem svo að flestir séu á
móti því að þetta gerist, nema kannski nokkrir alkar úr röðum
ungmennahreyfinga stjórnmálaflokkanna, plús nokkrir aðrir. Ef þú
vilt hafa gott og mikið úrval, sem og fá góða þjónustu er ÁTVR
málið. Minnstu búðir ÁTVR eru með t.d 300.tegundir.
Förum í verð.
Áfengisgjald er mjög hátt á Íslandi og mun ekkert breytast, þótt
ÁTVR líði undir lok. Og hvað hefur fólk fyrir sér að verð á víni og
bjór lækki? Í dag getur þú keypt þér eina dós af Viking lite, á
sama verði, hvort sem það er í Reykjavík, Ísafirði eða á
Reyðarfirði. Þið getið gleymt því að þetta haldist, ef ÁTVR líður
undir lok. Á það að bitna á landsbyggðinni, að einhverjar alkar
vilja fá vínið í matvörubúðir?
Ef fólk vill fá
lítið vöruúrval, litla þjónustu og hærra verð, þá mæli ég með því
að ÁTVR leggist niður.
Ef fólk vill fá
mikið vöruúrval, góða þjónustu, forvarnarstarf og sama verð, hvort
sem þú ert í Reykjavík eða á Reyðarfirði, þá mæli ég með því að
ÁTVR selji okkur mjöðinn þykka í marga áratugi í viðbót.
»
21.04.2006 12:34:24 / gazzi
Áður en ég hverf inní helgina, þá langar mig að birta pistil
eftir hann mág minn, Óskar Örn Guðbrandsson. Það er ekki á hverjum
degi sem ég geri það, en ég tek undir hvert einasta orð sem hann
segir í pistli þessum.
Einhverju sinni var sagt um Eirík Jónsson
að hann væri endaþarmur íslenskrar
blaðamennsku. Ég man því miður ekki hver það var sem átti
þessi fleygu orð
en sannfærist aftur á móti um að viðkomandi hafi svo sannarlega
rétt fyrir
sér og gott betur en það. Ef við hugsum okkur eitthvað
rosalega subbulegt
þá gæti endaþarmur verið einhversstaðar þar í flokki. En
hversu subbulegur
er endaþarmur endaþarmsins?
Ég held að Eiríkur Jónsson og hans fólk eigi að skammast sín og ég
held að
Hallgrímur Thorsteinsson hafi haft rétt fyrir sér að það þurfi að
segja
þessu fólki að skammast sín. Sá/sú sem er í bestu aðstöðunni
til að koma
þessum skilaboðum á framfæri við endaþarminn og alla endaþarmana
hans er
ég.... já og þú..... og allir hinir sem þetta subbulega lið segist
vera að
höfða til. Á meðan við lesum það sem þetta ..... er að skrifa
þá heldur það
vinnunni og blaðið heldur áfram að koma út.
Við eigum ekki að samþykkja svona subbuskap eins og allir þessir
endaþarmar
eru að láta frá sér í umfjöllun um bræður okkar og systur.
Það er enginn
svo slæmur, nema kannski endaþarmarnir sjálfir, að eiga svona
subbuskap
skilinn. Fólk hefur leyfi til að gera mistök og taka á þeim á
eigin
forsendum, án þess að Eiríkur Jónsson og allir hans endaþarmar sé
að hnýsast
þar í, jafnvel þó fólk teljist kóngar og drottningar.
Við skulum hafna þessu og við skulum gera það með skýrum
hætti. Við skulum
ekki kaupa blöð sem Eiríkur Jónsson hefur tök á að setja mark sitt
á. Við
skulum gera útaf við Eirík Jónsson og það sem svo klárlega hefur
komið fram
að undanförnu að hann stendur fyrir. Við skulum koma Eiríki
Jónssyni í það
svað sem endaþarmi sæmir. KAUPUM EKKI DV OG HÉR OG NÚ

»
20.04.2006 18:57:21 / gazzi
Ég er svo spes. Ég rændi þessu af bloggi hjá konu út í bæ. Hún
líklega les mér pistilinn, þegar hún kemst að því.
Veldu mánuðinn sem þú fæddist
Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Júlí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember-Ég kúkaði á
Veldu núna afmælisdaginn þinn
1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asískum skiptinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Grjót
16. Hund
17. Klámstjörnu
18. Þvagprufu
19. Pung
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Birgittu Haukdal
29. Bjór
30. Tappatogara
31. Stólpípu
Veldu Þriðja stafinn í föðurnafninu þínu
A- Af því að ég elska súkkulaði
B- Af því að mér leiddist
C- Af því að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tveim nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Af því mér finnst egg góð
H- Af því að ég er á sýru
I- Af því ég misteig mig
J- Af því ég er með vörtu
K- Af því mér líkar Cheer
L- Af því að ég var skökk/skakkur
M- Af því ég var full/ur
N- Af því að mamma sagði mér að gera það
O- Af því ég er hýr
P- Af því ér er einmanna
Q- Af því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Af því að ég er gröð/graður
S- Af því mig langar að deyja
T- Af því ég hata skóla
U- Af því ég þarf að fróa mér
V- Af því að ég elska náttfata party
W- Af því að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Af því að ég elska prump
Ö- Af því ég er að safna rassahárum
Fyrir þá sem eiga Á,Ð,É,Í,Ó,Ú,Ý,Z,Þ,Æ... Af því að ég er með
þarmagras.
Mitt kom þannig út... Ég kúkaði á páskahérann að því að mamma sagði
mér að gera það  Hvernig kom þitt út?
»
05.04.2006 17:00:05 / gazzi
Þessi litla sanna saga, sem ég ætla hér að segja ykkur frá, gerðist
fyrir rúmum tveimur árum síðan. Þetta er ein versta lífsreynsla sem
ég hef lent í á ævinni.
Það var laugardagsmorgunn. Ég sat við tölvunna og hún dóttir mín,
sem þá var 4.ára, var að leika sér við hliðinna á mér. Ég man ekki
hvort hún fann peninginn, sem hún var að leika sér með, eða hvort
ég gaf henni hann. Mig minnir að þetta hafi verið krónupeningur.
Allt í einu gerist það, að ég heyri skelfileg kokhljóð frá henni
dóttur minni. Hún snýr sér að mér og andlitið sem mætti mér... það
var ólýsanlegt. Andlitið á henni dóttur minni var einn stór
skelfingarsvipur og hef ég aldrei séð aðra eins skelfingu á ævi
minni. Ég vissi um leið hvað gerst hafði. Hún hafi sett peninginn
upp í sig og núna sat hann fastur í hálsi hennar.
Allt gerðist á methraða, eftir að mér varð ljóst hvað var á seyði.
Áður en ég vissi af var ég kominn með símann, sem var við hliðina á
mér, í aðra höndinna og hin höndin var farin að berja fast á bak
dóttur minnar, þar sem hún lá á hnénu á mér. Ég veit ekki hversu
oft ég barði á bak hennar, né hversu fast, en veit þó að ég barði á
bak hennar töluvert oft og ég veit að ég barði ekki laust.
Á meðan ég barði á bak hennar, náði ég sambandi við neyðarlínunna
og náði að útskýra fyrir þeim hvað var á seyði og að mig vantaði
hjálp hið snarasta. Allt í einu heyri ég dóttur mína segja að
peningurinn sé farinn. Ég hætti því að berja á bak hennar og reyndi
að finna peninginn. Ég fann hann ekki, en þá sagði hún mér að hann
hefði farið ofan í maga. Ég hefði líklega ekki fundið peninginn, þó
hann hefði hrokkið upp úr henni, vegna þess að allt gólfið var út í
ælu. Líklega vegna þess að ég barði hana í bakið svo oft og svo
fast. Það var ekki sjens að ég ætlaði að fara að missa gullmolann
minn hana dóttur mína, þarna á gólfinu.
Ég útskýrði þá fyrir neyðarlínunni, að peningurinn væri ekki lengur
fastur í hálsi hennar og að hann hefði farið ofan í maga. Vildu
þeir hjá neyðarlínunni samt koma og athuga hana dóttur mína og ég
samþykkti það undir eins. Þeir sögðu mér að láta hana dóttur mína
setjast og báðu mig að róa hana niður, því hún var mjög hrædd.
Síðan lauk símtalinu.
Ælan fékk að vera lengur á gólfinu, því að hún dóttir mín skipti
mestu máli og það skipti miklu máli að reyna að róa hana niður. Mér
tókst það... eða þangað til ég sagði henni að sjúkrabílinn væri á
leiðinni. Þá gersamlega trylltist hún aftur. Það var hræðilegt og
náði ég róa hana niður rétt áður en lögreglan kom. Þeir komu
fyrstir á svæðið. Þ.e tveir lögreglumenn og örskömmu síðar komu
tveir sjúkraflutningamenn.
Dóttir mín var svo hrædd við lögreglumenninna og
sjúkraflutningamenninna, að ég hef aldrei orðið vitni að öðru eins.
Hún reyndar sagði ekki neitt né grét, en hún fraus alveg og
titraði, eins og hún hefði lent í 19.stiga frosti. Þeir skoðuðu
hana og komust að þeirri niðurstöðu, að allt væri í lagi með hana
dóttur mína. Peningurinn mundi skila sér innan fárra daga. Ég var
mjög ánægður með niðurstöðuna og eins hversu menn voru fljótir á
staðinn. Takk löggur, takk sjúkraflutningamenn, takk
neyðarlína.
Þessi laugardagsmorgunn á aldrei eftir að gleymast. Dóttir mín man
enn eftir honum og við tölum stundum um hann. Alltaf þegar ég hugsa
um þennan laugardag, þá fæ ég hnút í magann. Líka þegar ég hripaði
þessi orð niður.
»
30.03.2006 18:11:53 / gazzi
Tekið af heimasíðu Áslaugar Systur.
"Þuríður mín verður slappari með hverjum
deginum sem líður, var mjög, mjög slöpp í morgun, en hresstist
aðeins við að fara í leikskólann, en létum þær vita ef hún myndi
ekki hressast, þá myndum við vilja fá hana heim. Helgin var líka
erfið hjá henni, hún leggur sig tvisvar yfir daginn er með svo
litla orku greyið. Ég horfði á hana sofandi í gær og tárin ætluðu
ekki að hætta leka hjá mér, ég fann/finn svo til með henni. Mér
finnst hræðilega erfitt að horfa uppá hana svona og maður getur
ekkert gert 
Maður á sér marga drauma og einn af mínum draumum var að geta verið
heimavinnandi og geta séð alfarið um börnin mín. Þegar
fæðingarorlofið mitt með Oddnýju Erlu var að klárast, langaði mig
engan veginn að fara á vinnumarkaðinn og var heldur eiginlega ekki
tilbúin að fara frá henni, fannst hún svo lítil að fara í pössun og
þótt það væri til mömmu og Önnu. En ég sá það að ég gat engan
veginn verið heima með stelpurnar mínar, jú ég þurfti að fara vinna
til að geta séð fyrir heimilinu, borgað reikninga, keypt föt á
börnin og bara allan pakkann og var náttúrlega mjög svekkt yfir
því.
Ég var búin að fara í nokkur atvinnuviðtöl sem gengu mjög vel og
var meira að segja búin að fá eina vinnu sem ég var mjög glöð
með. En svo veiktist Þuríður mín og allt breyttist á einum
degi. Ég gat ekki farið útá vinnumarkaðinn og draumurinn minn varð
að veruleika Ohh ég vildi óska þess að þessi draumur minn
hefði ekki ræst.
Ég vildi óska þess að mig væri ennþá að dreyma að vera heima með
börnin mín. Ég vildi óska þess að ég væri að pirra mig á því, hvað
ég væri láglaunuð í þessu starfi sem ég væri að vinna við. Mig
langar að pirra mig yfir því að börnin mín þurfa að vera á
leikskóla frá níu-fimm og ég hefði minni tíma fyrir þau.
Mig langar að pirra mig á því hvað ég væri að borga mikið
fyrir þau á leikskóla. Mig langar að vera pirruð við yfirmann
minn, því hann vill ekki gefa mér launahækkun.
Mig langar ekki að vera pirruð við TR því þeir borga = ekkert til
foreldra sem geta ekki farið á atvinnumarkaðinn og svo eru öryrkjar
að kvarta. Jú auddah þurfa þeir meiri laun frá þeim en hvað með
okkur með langveik börn. Ég hef aldrei kvartað undan því,
er bara pirruð. Mig langar ekki að vera pirruð á því að það er
svo erfitt að finna rétta lækningu fyrir Þuríði mína.
Mig langar ekki að vera pirruð á því hvað hún þarf að taka
mikið af lyfjum sem gera ekkert mikið gott fyrir hana. Mig langar
ekki að vera pirruð á því að þurfa borga hluta af lyfjunum hennar
Þuríðar, því TR geta ekki hunskast til að samþykkja þau öll.
Ég er ótrúlega eitthvað pirruð í dag, vildi óska þess að þessi
draumur minn hefði ekki ræst."
Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá er lífið oft ekki dans á rósum
hjá henni ástkæru systur minni. Ef ég gæti, þá mundi ég skipta við
hana litlu frænku mína og gefa henni eðlilegt líf. Við hin sem
þurfum ekki að standa í sporum systur minnar, skulum vera þakklát
fyrir það sem við höfum. En þrátt fyrir veikindi hennar litlu
frænku minnar, er ég samt þakklátur fyrir að eiga hana að. Hún er
frábær... eiginlega miklu meira en frábær. Ég bara get ekki fundið
nógu sterkt lýsingarorð yfir hana frænku mína, hversu frábær hún
er.
»
03.02.2006 09:48:39 / gazzi
Da kine
-Versatile word used to replace words that can't be remembered or
are unknown while you are speaking. Can literally mean anything and
everything.
»
01.01.2006 13:25:53 / gazzi
Jæja.. Hafir
þú ekki tekið eftir því, að þá er árið 2005 liðið og nýtt ár sem
kallast, árið 2006 tekið við. Ég vona að þú hafir og getir lært
eitthvað af þeim mistökum sem þú gerðir á árinu 2005 og haldir
áfram að gera það sem þú gerðir svo vel, á komandi ári.
Haldið áfram að
taka mark á bullinu í mér, því að hvert einasta orð er heilagur
sannleikur og stenst allar lögreglurannsóknir.
Ef þú ert einsamall/einsömul, gerðu þá eitthvað í því, því að
það er ekki gaman að vera ein(n) að eilífu. (Samt oft gott að vera
einn) Ef þú hefur virkilegann áhuga á þessum manni/konu, then go
for it, því að þessi manneskja verður ekki á lausu að eilífu. Allt
sem þarf er hugrekki, hvort sem þú átt við feimni að stríða eður
ei.
Ef þú átt óuppgerða hluti við einhvern, þá mæli ég sterklega með
því að þú gerir eitthvað í þeim málum, því að það er ekki
skemmtilegt að vera með óþekkann og óskeindann púka endalaust á
bakinu. Kveðum niður ljóta drauga og látum okkur líða vel.
Eigir þú gamlann draum, þá mæli ég með því að þú gerir eitthvað
í þeim málum og látir hann rætast. Ef þú gerir það ekki, þá er mjög
hætt við að þú sjáir eftir því seinna meir, þegar það er kannski
orðið of seint.
Ef þú vilt verða virkilega góð(ur) í einhverju og ná árangri, þá
segi ég þetta. Æfing, æfing, æfing og aftur æfing. Málið er ekkert
flókið. Ekki ætlast til þess að þú náir árangri á einum degi eða
einni viku. Ég ætti að þekkja þetta sjálfur.
Þú verður að kunna að taka við nei-um, því lífið væri hálf
litlaust ef við fengum allt upp í hendurnar og allt væri eftir
okkar höfði. Þá er bara að gera enn betur, ef þú færð þetta þunga
orð (nei) í smettið og vinna þig hægt en örugglega að já-inu.
Í lokin langar mig að segja þetta… Hann fór í veiðiferð í gær,
hann Úlfgang bóndi..
»
21.12.2005 23:22:28 / gazzi
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
Dagsetning
10. febrúar 2012
|